Í Hljómu er boðið upp á einstaklingsmiðaða og sértæka tónlistarkennslu.
Þar gefst nemendum á öllum aldri kostur á að nálgast ólík hljóðfæri á heyrandi máta. Hin ýmsu hljóðfæri koma til greina, auk söngsins. Einnig er hægt að fá að njóta sín í fjölbreytileika hljóðfæranna áður en eitt einstakt hljóðfæri verður fyrir valinu.
BARNAHARPAN eru 10 vikna námskeið í litlum hópum á laugardögum fyrir börn á aldrinum 2 - 6 ára.
Opið er fyrir skráningu á NÁMSKEIÐ VORANNAR 2021
Ummæli foreldra
"Sonur minn er orkumikill og ákafur strákur en líka ljúfur og hrifnæmur. Þegar við stígum inn í litla, fallega húsið þar sem Inga tekur á móti börnunum skynjar maður strax ljúfa ró - “svona rólegt og huggulegt” eins og sonur minn hefur sagt. Hann hlakkar til í hvert sinn. Fyrir mig sem foreldri hefur verið dýrmætt að finna stað sem styður við það að finna vellíðan gegnum lágstemmda tónlistariðkun, og þar sem ríkir svo fallegur andi, sem barnið skynjar vel. Slíkt tel ég mikilvægt mótvægi við fjörið og asann sem oft einkennir líðandi stund. Þannig staðir eru vandfundnir".