Hljómu er að finna í fallega svarta timburhúsinu við Austurgötu 38 - í hjarta Hafnarfjarðar.
Þar er aðstaða til tónlistarkennslu og músíkmeðferðar fyrir einstaklinga og hópa. Mjög gott aðgengi er fyrir hreyfihamlaða. Músíkmeðferðin getur einnig farið fram í heimahúsi eða öðrum dvalarstað skjólstæðings. Allt eftir þörfum hvers og eins. |
Inga Björk Ingadóttir lauk burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskóla Kópavogs árið 1999.
Hún nam músíkmeðferð við Musiktherapeutische Arbeitsstätte í Berlín á árunum 2001 - 2006. Í kjölfarið starfaði hún við músíkmeðferð og sértæka tónlistarkennslu í Þýskalandi og Austurríki á hinum ýmsu stofnunum, bæði á heilbrigðis - og uppeldissviði. Þar má m.a. nefna : - vinnu með börnum með sérþarfir - á sjúkrahúsi sérhæfðu í krabbameinslækningum við líknandi meðferð - með fjölfötluðum einstaklingum. Frá árinu 2011 hefur Inga Björk starfað á Íslandi við músíkmeðferð og tónlistarkennslu í Hljómu. Þar hafa starfssvið hennar m.a. verið : - vinna með börnum með ýmis konar áskoranir - vinna með börnum og fullorðnum með hreyfihamlanir - vinna með fullorðnum með Alzheimer og heilabilun - tónlistarkennsla yngsta fólksins Ásamt starfi sínu í Hljómu sinnir Inga Björk sértækri tónlistarkennslu í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Tónlistarskóla Kópavogs. Einnig sinnti Inga Björk tónlistarkennslu í Waldorfskólanum í Lækjarbotnum frá 2011 - 2019. Inga Björk er félagi í Físmús, félagi músíkmeðferðarfræðinga á Íslandi. |