Músíkmeðferðin
Músíkmeðferð er fyrir fólk á öllum aldri. Hún hentar í nær öllum tilvikum, hvort sem um aðkallandi aðstæður eða langvarandi verkefni, veikleika eða einhæfi er að ræða.
Meðferðarferlið er miðað útfrá aðstæðum og þörfum hvers og eins, og getur spannað lengri eða skemmri tímabil.
Músíkmeðferðin getur td. stuðlað að jafnvægi, örvað blóðrásina, haft áhrif á öndun, getur róað og vakið, verið uppbyggjandi, formandi og styrkjandi, styrkt getu til einbeitingar, örvað skynjun, skynúrvinnslu og tjáningu, eflt sjálfstraust og sjálfsöryggi, svo fátt eitt sé nefnt.
Músíkmeðferð Hljómu:
örvar og styrkir heilbrigða innri krafta hvers og eins
tekur á móti einstaklingnum útfrá heildrænum sjónarmiðum
styður einstaklinginn til virkni og sjálfstæðis í sínum innri viðfangsefnum
styrkir einstaklinginn við að öðlast jafnvægi á hinum ýmsu sviðum, líkamlegum og andlegum
er mótuð af spilandi, syngjandi eða hlustandi skjólstæðingi
virkjar skapandi krafta einstaklingins í hlustun, tón – og hljómsköpun
er lifandi samtal spilenda og hlustenda á máli tónlistarinnar
er farvegur fyrir krafta tónlistarinnar sem stuðla að jafnvægi og uppbyggingu
er ætluð öllum þeim sem óska eftir uppbyggjandi og græðandi eiginleikum tónlistarinnar.